42. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn miðvikudaginn 10. mars 2021 kl. 13:02


Mætt:

Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) formaður, kl. 13:02
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 13:02
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 13:02
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 13:02
Brynjar Níelsson (BN), kl. 13:02
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 13:02
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 13:02
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 13:02
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 13:02
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 14:05

Þórarinn Ingi Pétursson boðaði seinkun.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:02
Fundargerð 41. fundar var samþykkt.

2) Heiðarfjall í Langanesbyggð - barátta landeigenda við að fá mengandi úrgang frá ratsjárstöð bandaríska hersins fjarlægðan Kl. 13:02
Á fund nefndarinnar mættu Veturliði Þór Stefánsson og Gísli Rúnar Gíslason frá utanríkisráðuneyti. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Þá ræddi nefndin málið.

3) Samskipti dómsmálaráðherra og lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn á meintum brotum á sóttvarnalögum Kl. 13:40
Nefndin ræddi málið.

4) 339. mál - kosningalög Kl. 14:06
Nefndin ræddi málið.

5) Önnur mál Kl. 14:38
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 14:38